Ég held að það sé augljós niðurstaða liðinna kosninga að Íslendingar eiga margt eftir ólært - og stjórnmálamenn langtum meira.
Lærdómur kosninganna er að kjósendur eru reiðubúnir til þess að greiða hverju sem er atkvæði sitt, hversu fáránlega eða litla skírskotun sem framboðið á til sannfæringar þeirra.
Lærdómur kosninganna er að trúverðugleiki stjórnmálaflokka hefur beðið stórfenglega hnekki hjá kjósendum þessa lands. Svo mikla að efast má um hvort stjórnmálin í þeirri mynd sem við þekkjum þau í dag munu hafa það af.
Ég velti því fyrir mér: Er það svo slæmt?
Viljum við kosningabaráttu þar sem kosningastjóri eins flokks básúnar í einn af aðalfréttatímum dagsins fullyrðingum sem hann veit að standast ekki skoðun, að því er virðist til þess eins að ná höggi á andstæðinginn og vekja athygli á sjálfum sér?
Viljum við kosningabaráttu þar sem oddviti eins flokks er ásakaður af samflokksmönnum sínum um lóðabrask, fyrirtækjabrask og brot gegn siðareglum kjörinna bæjarfulltrúa eða jafnvel gegn lögum með því að víkja ekki sæti við afgreiðslu nefnda og ráða bæjarfélagsins á málefnum félaga og verkefna sem sögð eru tengjast honum?
Viljum við stjórnsýslu þar sem athugasemdafrestir eru settir á tíma þar sem fæstir geta kynnt sér mál eða gefið sér tíma til þess að leggja fram vel ígrundaðar athugasemdir um það?
Viljum við bæjarstjóra sem hreytir ónotum í fólk og gerir í því að lítillækka það?
Viljum við að ákvarðanir séu teknar utan funda í litlum hópi án gegnsæis eða nægilegrar formfestu?
Viljum við að frambjóðendur flokkanna séu svo umdeildir að útstrikanir listans sem þeir bjóða sig fram á, duga til þess að þeir séu færðir niður eða jafnvel felldir út?
Viljum við að oddvitar flokkanna raði í kringum sig eintómu já-fólki sem veitir ekki þá vídd sem þarf í lýðræðislega umræðu og ekki það aðhald sem þarf til þess að gera ákvarðanirnar betri?
Ef niðurstaða þessara kosninga verður til þess að við hættum að geta tekið dæmi eins og hér að ofan þegar við ræðum liðnar stundir, þá tel ég tvímælalaust að niðurstaðan sé þess virði að á það sé reynt. Því þá hefur þeim breytingum verið náð sem ég hef persónulega barist fyrir.