Úr sérblaði Kennarasambands Íslands sem fylgdi fréttablaðinu 19. maí:
Hvað finnst þér skipta mestu máli í skólamálum?
l Ætlar þú að skera niður í skólamálum ef þú færð umboð eftir kosningar?
l Ef þú ætlar að skera niður í menntun eftir kosningar, nákvæmlega hvað ætlarðu þá að skera niður?
l Veist þú hvaða breytingum fjárframlög til skólahalds í sveitarfélaginu þínu hafa tekið eftir 2008?
l Veist þú hvaða þættir hafa verið skornir niður og hvernig áhrif það hefur á starf í skólunum?
l Mörg börn fá ekki aðstoð við heimanám heima hjá sér. Ætlar þú að sjá til þess að þau fái það í skólanum?
l Í sumum löndum er leikskólinn gjaldfrjáls að öðru leyti en því að foreldrar borga fyrir máltíðir. Hvað finnst þér um þetta?
l Geta allir foreldrar í þínu sveitarfélagi keypt mat fyrir börnin sín í skólamötuneyti?
l Eru ungmenni í þínu sveitarfélagi sem ekki komast í framhaldsskóla vegna fjárhagserfiðleika foreldra þeirra?
l Ætlar þú að taka þátt í hækkun gjalda í skólum og á frístundaheimilum á næsta kjörtímabili?
l Hefur þú hugleitt hvað jafnrétti til náms þýðir?
l Ert þú vakandi yfir hvers kyns félagslegri mismunun barna og ungmenna? Skiptir það þig máli að koma í veg fyrir hana?
l Hefur þú kynnt þér skólastarf í þínu sveitarfélagi? Með hvaða hætti?
l Þekkir þú löggjöf um skólastarf, hefurðu til dæmis kynnt þér vel menntalögin frá 2008?
l Hver eða hverjir eru mikilvægustu málaflokkarnir í hverju sveitarfélagi að þínu mati? Af hverju?
l Hvað finnst þér um list- og verkmenntun?
l Hver er þín skoðun á einstaklingsmiðuðu námi?
l Hvað vilt þú gera til að efla samstarf skóla og heimila?
l Fá öll ungmenni í þínu sveitarfélagi nám við hæfi?
l Samkvæmt 26. grein grunnskólalaga eiga grunnskólanemendur rétt á að stunda nám í einstökum greinum á framhaldsskólastigi, hafi þeir sýnt fram á fullnægjandi færni. Hvernig er þessu farið í þínu sveitarfélagi?
l Samkvæmt nýjum lögum um skólastig eiga stig milli skólastiga að vera sveigjanleg. Hvernig á að framkvæma það í kreppu?
l Hvernig er hægt að koma á nýjum lögum í kreppu?
l Fjölgun í bekkjum eða námshópum er lausn sem margir stjórnmálamenn vilja grípa til, - hver er þín skoðun á því úrræði?
l Hefur þú hugleitt hvers virði sá mannauður er sem býr í starfsfólki skóla í þínu sveitarfélagi?
l Á hvern hátt telur þú best að standa vörð um að auka við fagmennsku í skólastarfi?
l Ert þú sáttur/sátt við þann aðbúnað sem þitt sveitarfélag býr nemendum og starfsfólki skóla? Ef ekki, hvar telur þú brýnast að bæta úr í þeim efnum?
l Hvaða náms- og félagsleg úrræði eru í boði fyrir fötluð ungmenni í þínu sveitarfélagi?
l Hvaða náms- og félagsleg úrræði eru í boði fyrir ungmenni af erlendum uppruna í þínu sveitarfélagi?
l Hvaða náms- og félagsleg úrræði eru í boði fyrir atvinnulaus ungmenni í þínu sveitarfélagi?
l Hvaða aðstoð og þjónustu býður sveitarfélagið þitt nemendum með sérþarfir?
l Fá nemendur í skólunum í þínu sveitarfélagi náms- og starfsráðgjöf?
l Hvað telur þú að þurfi að gera til að efla tengsl grunnskóla og framhaldsskóla?
l Geta framhaldsskólar veitt nemendum þá menntun sem þeir eiga rétt á samkvæmt nýjum framhaldsskólalögum?
l Vilt þú beita þér fyrir því að nemendur fái umönnun og kennslu í forföllum?
l Finnst þér mikilvægt að verja stjórnunarstöður í skólum til að skólarnir haldi styrk sínum?