You are here

netið

Tökum upp þráðinn að nýju ...

Ég lagði fyrirætlanir um blogg til hliðar fljótlega eftir að ég hóf störf hjá Auðkenni, því nauðsynlegt var að vinnan tæki allan minn tíma til að byrja með. Áform voru um að keyra skilríkjaverkefnið áfram þannig að við værum komin í fulla sveiflu haustið 2008, innan við ári eftir að ég hóf störf. Áformin voru góð en sviptingar tóku af okkur völdin og í stað þess að hafa skilríkin í fullri sveiflu haustið 2008 var fyrirtækið skorið niður við nögl, öll fita skorin utan af því og reksturinn keyrður áfram á lágmarksstarfsmannafjölda og hámarksvinnuframlagi þeirra.

Bloggfærslurnar þurftu því að bíða enn um sinn. Nú er hins vegar meiri ró yfir öllu, bankarnir í rólegheitum að taka við sér og hefja sína endurnýjun, vinnuálagið einungis 100% og stærstum hluta undirbúnings fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Kópavogi lokið. Nú er málið að sigla skútunni í land.

... og þá gefst tími til þess að blogga á ný. Til þess að greina að nýju frá fortíð og framtíð, áformum og áhyggjum, tilfinningum og skoðunum.

Hér er ég, og get ekki annað.

Pages

Subscribe to RSS - netið