
27. janúar sl. var 12 starfsmönnum í 11 stöðugildum í stjórnsýslu Kópavogsbæjar sagt upp störfum. Var ástæðan sögð vera hagræðing í ljósi erfiðrar stöðu sveitarfélagsins. Uppsagnirnar ásamt sameiningu nefnda og skipulagsbreytingum hjá bænum áttu að spara 70 milljónir króna á ársgrundvelli.
Báðum starfsmönnum (tveimur konum) starfsmannadeildar bæjarins að starfsmannastjóranum frátöldum, var sagt upp störfum. Önnur þessara kvenna gengdi stöðu jafnréttisfulltrúa í hálfu starfi. Talað var um að flytja störfin til innanhúss og fela öðrum starfsmönnum bæjarins að ganga í störf þeirra sem sagt var upp, m.a. þessara tveggja kvenna. Verkefni jafnréttisfulltrúa áttu meðal annars að flytjast til lögfræðideildar sem er undir stjórn Þórðar Clausen Þórðarsonar bæjarlögmanns.
Í gær var síðan fundur í bæjarráði Kópavogs. Á þeim fundi var tekið fyrir erindi sem Þorsteinn Einarsson, starfsmannastjóri bæjarins, hafði sent til ráðsins 8. febrúar, sléttum 12 dögum eftir uppsagnirnar. Um þetta mál er ritað svo í fundargerð bæjarráðs:
"1102244 - Heimild til ráðningar í 100% starf mannauðsfulltrúa í starfsmannadeild
Frá starfsmannastjóra, dags. 8/2, óskað er heimildar bæjarráðs til að auglýsa eftir mannauðsfulltrúa í starfsmannadeild í 100% starf.
Bæjarráð samþykkir að auglýst verði eftir mannauðsfulltrúa í starfsmannadeild í 100% starf."
svo mörg voru þau orð ...