You are here

Um Elfi

Elfur Logadóttir er formaður stjórnar kvennahreyfingar Samfylkingarinnar og varaformaður stjórnar kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í suðvesturkjördæmi. Hún er lögfræðingur og viðskiptafræðingur með framhaldsmenntun í upplýsinga- og samskiptatæknirétti frá Osló. Elfur starfar sem lögfræðingur Auðkennis og talsmaður Auðkennis við innleiðingu rafrænna skilríkja til almennings á Íslandi. Hjá Auðkenni sinnir hún einnig rekstrarmálefnum félagsins; fjárhagsáætlanagerð og vöruþróun. Hún hefur meðal annars starfað við ritun lögfræðilegra greinargerða, fjármálastjórn, verkefnastjórn, markaðssetningu, hugbúnaðargerð, hjá Breiðabliki, Íbúðalánasjóði, skattrannsóknarstjóra ríkisins og H:N markaðssamskiptum. Hún hefur einnig verið stundakennari og gestafyrirlesari í grunn- og meistaranámi lagadeildar Háskólans í Reykjavík.

Elfur er 38 ára Kópavogsbúi og býr með 17 ára dóttur sinni við Skjólbrautina þar sem hún hefur átt heima í 25 ár utan eins árs er hún var við nám í Noregi. Hún hefur verið félagi í Samfylkingunni um langa hríð og virk í starfi flokksins frá því námi lauk.

Elfur hefur lagt höfuðáherslu á efnahagsmál og fjárhagslega velferð heimilanna í starfi sínu innan Samfylkingarinnar, þar sem hún hefur m.a. verið annar tveggja formanna viðskiptanefndar Samfylkingarinnar og tekið þátt í vinnu við stefnu flokksins um efnahagslega endurreisn í aðdraganda síðustu alþingiskosninga. Augljós tengsl eru á milli stefnumótandi ákvarðana ríkisstjórnarinnar um efnahagslega endurreisn og þess félagslega stuðningsnets sem felst í nærþjónustu sveitarfélaga og leggur Elfur áherslu á að ávallt verði hugað að áhrifum ákvarðana á heimilin og fjölskyldurnar við áætlanagerð bæjarstjórnar Kópavogs á næstu árum. Í því sambandi þarf sérstaklega að standa vörð um félagslega virkni barna jafnt sem fullorðinna.

Elfur hefur ávallt lagt áherslu á gagnsæ, málefnaleg og heiðarleg vinnubrögð og telur að opnir stjórnarhættir og öflugt samstarf við bæjarbúa og aðra hagsmunaaðila sé farsælasta aðferðin við stjórnun bæjarfélags.

Endurvekjum félagslegar áherslur í Kópavogi á grunni velferðar, nálægðar og sáttar við umhverfið.