You are here

Framboðsræða 25. janúar 2010

Fundarstjóri, ágætu félagar.

Að taka þátt í stjórnun Kópavogs, öðru stærsta bæjarfélagi landsins, í nafni Samfylkingarinnar, leiðir af sér ríkar skyldur. Það er munur á hugsjónum Samfylkingar um stjórnarhætti og sérhyggjustjórnarháttum núverandi meirihluta – og hann þarf að sýna.

Ég býð mig fram til að sigra núverandi meirihluta fámennisvalds og fyrirgreiðslustjórnmála og til að sýna í verki að sveitarstjórn á að sinna almannahagsmunum en ekki sérhagsmunum. Samkeppni er ekki hlutverk sveitarstjórnar.

Ég býð mig fram til að sýna fram á að lýðræðislegir stjórnunarhættir - þar sem hlustað er á alla raddir sem aðild eiga að máli, og þar sem gagnsæi og heiðarleiki eru í heiðri höfð - eru vísir á betra mannlíf en leyndarhættir og valdníðsla hafa í för með sér.

Ég býð mig fram til að verjast spillingaröflum sem eiga enn greiðari leið í sveitastjórnum en í landsmálum, sérstaklega í verktöku og embættisfærslum.

Ég býð mig fram til að standa vörð um jöfnuðinn og þá sem höllum fæti standa, þegar kreppir að, jafnhliða því að leggja grunn til framtíðar.

Ég býð mig fram til að breyta aðferðarfræði við gerð fjárhagsáætlunar, áherslum og vinnubrögðum í skipulagi og viðmiðum í almenningssamgöngum.

Góðir félagar, ég heiti Elfur Logadóttir og ég gef kost á mér í 4. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Kópavogi. Við þurfum sterka fulltrúa með sterk bein í bæjarstjórn Kópavogs á næsta kjörtímabili. Það er lítill vandi að sigla í meðvindi, en það þarf styrk, þekkingu og framtíðarsýn til að stjórna bæjarfélagi við þær, allt að því glæpsamlegu aðstæður sem nú ríkja og sem núverandi meirihluti átti ríkan þátt í að skapa.

Ég býð mig fram til þess að framtíðarsýn mannlífs í Kópavogi markist af því sem er mitt hjartans mál: frjótt og opið samfélag – jafnaðar, hreinskiptinnar umræðu og sáttar við umhverfið.

Góðir félagar, hér er ég og ég er tilbúin í slaginn.