You are here

Minn fyrsti bæjarstjórnarfundur

Ég sat minn fyrsta bæjarstjórnarfund í gær. Það var athyglisverð samkoma, verð ég að segja. Setið er við bogalagað langborð, allir með fartölvu fyrir framan sig og stærstan hlutann af fundinum situr fólk og horfir á tölvuskjáinn fremur en að horfast í augu eða á þann sem í ræðustól stendur.

Fyrstur tók til máls á fundinum Ármann Kr. Ólafsson og ég viðurkenni að mér brá. Líkamsstaða hans, staðsetning og styrkur raddar var þannig að ég heyrði varla í honum og hélt fyrst að hann væri að tala við sjálfan sig áður en hann byrjaði hina eiginlegu ræðu - og ég sat ekki langt frá ræðustólnum. Svo þegar fleiri tíndust upp og ég fór að gera mér betur grein fyrir samkomunni, þá áttaði ég mig á því að þetta var hans stíll. Ég er vön því að standa í ræðustól og eiga í samræðum við þá sem í kringum mig eru og einnig því að standa fyrir framan sal af nemendum með fartölvur sem þau horfa frekar á en kennarann, en ég átti von á að þessi samkoma yrði meira í ætt við það fyrra en hið síðara.

Nóg um það.

Ég ræddi nokkur atriði á þessum bæjarstjórnarfundi sem ég taldi mikilvægt að vekja máls á. Ég ræddi að sjálfsögðu um mannauðsfulltrúann og fyrirkomulag tilkynninga og umræðu um þá staðreynd að löngu áður en uppsagnirnar voru kunngerðar taldi yfirstjórn bæjarins það ljóst að breyta þyrfti mönnun á starfsmannadeild og í tölvudeild. Ég gagnrýndi að slíkar upplýsingar hafi engan veginn komið fram þegar uppsagnirnar og hagræðingin var kynnt - amk. ekki í umræðu utan Fannborgarinnar.

Ég ræddi einnig stöðu jafnréttisnefndarinnar og þá staðreynd að með skipulagsbreytingunum í starfsmannadeildinni hafi verið lögð niður 50% staða jafnréttisfulltrúa og verkefni hans falin þeim þremur lögfræðingum sem starfa hjá bænum í tveimur og hálfu stöðugildi. Ég setti það sérstaklega í samhengi við þær breytingar sem gerðar hafa verið á jafnréttisnefnd Kópavogs með því að setja á hið nýja jafnréttis- og mannréttindaráð auk jafnréttismála málefni mannréttinda og lýðræðis. Ég minnti á þau áhrif sem það hefur að jafnrétti er ekki lengur eina málið á dagskrá þeirrar nefndar og ég óttast að það muni þýða að drekkhlaðnir lögfræðingar verja mestum tíma í lýðræðið og litlum sem engum tíma í jafnréttið.
Bæjarstjóri benti mér á að ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur af þessu því með nýja fyrirkomulaginu væri tryggt að einn lögfræðingur stígi inn í störf annars, ef á þyrfti að halda.

Ég efast samt.

Ég fjallaði að sama skapi um mikilvægi þess að huga að fyrirkomulagi auglýsinga fyrir sumarvinnu ungmenna, sérstaklega þar sem ákveðið hefur verið að allar umsóknir sem berast of seint verða sniðgengnar. Mikilvægt er að tryggja að auglýst sé á miðlum sem krakkarnir þekkja og umgangast - t.d. á fésbókinni.

Til umræðu á fundinum var einnig löngu þörf stjórnsýsluúttekt á rekstri og stjórnun Kópavogsbæjar. Málið er enn til afgreiðslu hjá bæjarráði en ég lagði til við þá bæjarráðsfulltrúa sem í salnum voru að gerðar yrðu breytingar á fyrirliggjandi tillögu í þá átt að óháðir fulltrúar tækju að sér undirbúning úttektarinnar ásamt framkvæmd hennar. Gerði ég það meðal annars vegna þess að Ármann hafði komið upp skömmu áður og viðrað áhyggjur sínar af því að úttektin væri af pólitískum toga. Ég tel afar brýnt að farið verði í saumana á rekstri Kópavogsbæjar undanfarinn áratug og tel að þar verði upplýst um ýmislegt sem töluvert betur mætti fara. Ég ætla að láta það vera að nefna einstök dæmi máli mínu til stuðnings og eftirlæt uppljóstrun þeim sérfræðingum sem framkvæma munu úttektina. Ég tel einnig mikilvægt að ákveðið verði fyrirfram hvernig farið skuli með þann lærdóm sem vænta má að draga megi af slíkri úttekt og að úttektin leiði til breytinga á stjórnsýslu Kópavogsbæjar að því marki sem nauðsynlegt er.

það var margt annað til umræðu á fundinum og væri alltof langt mál að fara að tilgreina það allt hér. Upptaka af fundinum er birt á vef bæjarins nokkrum dögum eftir hvern fund svo ég vísa ykkur á það svæði, viljið þið fá frekari upplýsingar um það sem til umræðu var.

Ég viðraði upplifun mína af fundinum á fésbókinni strax í gærkvöldi:
"er nú búin að prófa að vera bæjarfulltrúi og get sagt fyrir mitt leyti að þó sumir þreytist aldrei á ódýrum og hallærislegum pólitískum keilum, þá tel ég það fyrir neðan mína virðingu að svara í sömu mynt."

Svo er bara að bíða og sjá hver hringir næst ...

Comments

Sæl Elfur. Ég ætla að byrja fagna komu þinni á þinn fyrsta bæjarstjórnarfund og vona að störf þín í bæjarstjórn verði öllum Kópavogsbúum til heilla.

Þú nefnir hér tvö mál og get tekið undir afstöðu þína í þeim báðum.

1. Varðandi starfsmannamálin, þá voru tveir starfsmenn látnir fara. Það sem ég hef kynnst þessum tveimur starfsmönnum, var um afar góða og hæfileikaríka starfsmenn að ræða. Það hefði verið tiltölulega létt verk að finna lakari starfmenn til niðurskurðar, ef leitað hefði verið. Það að annar þessara starfsmanna hafi verið jafnréttisfulltrúinn er tímaskekkja. Ráðning í stöðu nú gerir málið tortryggilegt!

2. Stjórnsýsluúttektin er áhugaverð, því þar ætlaði Guðríður að taka stjórn verkefnisins að sér. Bæjarstjórn Kópavogs er sannarlega enn með 2007 heilkennið. Ég verð að viðurkenna að hafandi hlustað á brot úr nokkrum bæjarstjórnarfundum, að maður heldur sig kominn á lélegt leikrit, þar sem fagmennska þekkist ekki.

3. Bið þig að skoða eitt dæmi sem "liggur" á borði bæjarstjórnar í nær 2 ár, en hún hefur ekki faglega þekkingu á að leysa. Þar gæti þín fagþekking komið að góðum notum.
Sendibílastöð Kópavogs fékk úthlutaðri lóð við Skemmuveg 50, árið 1997 (samkvæmt bréfi frá bænum). Árið 2008 var Sendibílastöðin fyrir miklu fjárhagslegu áfalli, vegna hrunsins og varð því að selja. Ég var fenginn til þess að leita til bæjarins, sem áður hafði hafnað Sendibílastöðinni mjög hagstæðri sölu. Ástæðan var breytt fyrirkomulag á svæðinu og jafnframt áhöld um eignarhald lóðarinnar. Þetta endaði með því að bréf var sent til bæjarstjórnar. Leitað var til skipulagstjóra, framkvæmdastjóra tæknisviðs og bæjarlögmanns sem allir mæltu með sölunni og töldu hana hagsæða hagsmunum bæjarins.
Mér skilst að síðan hafi málið verið að veltast um í leit bæjarfulltrúa að klekkja hvor á öðrum, en hagsmunir sendibílsjóranna eru að engu hafðir. Þeir sem þekkja til starfskjara sendibílstjóra vita að þar fer stétt sem auðvelt er að níðast á.
Þetta mál hafa tveir lögmenn Kópavogsbæjar, einn fyrrverandi bæjarlögmaður Kópavogsbæjar og tveir hæstaréttalögmenn skoðað og þeir komast allir að sömu niðurstöðu.

Ég skora á þig að kynna þér málið, þó ekki væri nema vegna mannúðarástæðna.

Pages