You are here

Ef þú ert jafnréttissinni, þá ertu femínisti

Kæru félagar,

Í dag er kvennafrídagurinn 24. október 2011.
Það er því við hæfi að rýna kraftmikinn landsfund liðinnar helgi frá sjónarhorni kvenna og varða leiðina framá við. Kvennahreyfing Samfylkingarinnar tók virkan þátt í landsfundinum, hélt málstofu og minnti á sig í anddyri Valsheimilisins. Jafnframt voru gerðar nokkrar breytingar á lögum Samfylkingarinnar sem hafa bein áhrif á starf og áhrif kvennahreyfingarinnar.

Setningarræða formanns
Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar varði eðlilega mestum tíma í setningarræðu sinni í yfirferð yfir ótrúlegan árangur núverandi ríkisstjórnar á undanförnum tveimur árum, en þar var fleira til talið. Þremur öflugum konum, þeim Ingibjörgu Sólrúnu, Steinunni Valdísi og Þórunni Sveinbjarnardóttur, var klappað lof í lófa þegar þeim var þakkað þeirra mikilvæga framlag á liðnum árum.
Jóhanna rifjaði jafnframt upp þann árangur sem náðst hefur í jafnréttismálum; hlutur kvenna hefur aldrei verið meiri í stjórnsýslunni og við hljótum að fagna því að markmiði jafnréttislaga um minnst 40% fulltrúa af hvoru kyni hefur loksins verið náð í nefndum, stjórnum og ráðum á vegum ríkisins. Formaðurinn minnti einnig á lögfestingu á hlutfalli í stjórnum stærri fyrirtækja og lífeyrissjóða, áætlun gegn kynbundnu ofbeldi, aðgerðaráætlun vegna launamunar kynjanna og lög um vændi, nektarstaði og Austurrísku leiðina. Allt eru þetta merki um að raunverulegur árangur hefur náðst í jafnréttismálum á undanförnum árum.
Því miður eru þó merki þess að við búum við töluvert meira formlegt jafnrétti en raunverulegt og það eru því næg verkefni fyrir kvennahreyfinguna: Það þarf að endurvekja fæðingaorlofssjóð úr fjötrum niðurskurðar, auka verulega áherslur kynjaðrar hagstjórnar og huga mun betur að áhrifum niðurskurðar á starfsaðstæður kynjanna.

Kvennahreyfingin á landsfundi
Kvennahreyfing Samfylkingarinnar átt tvær beinar innkomur á landsfundinum. Annars vegar tóku skýr skilaboð kvennahreyfingarinnar á móti öllum landsfundarfulltrúum og öðrum gestum landsfundarins strax í anddyrinu þar sem einföld og sterk skilaboð um merkingu orða hrópuðu á athygli alla helgina: Ef þú ert jafnréttissinni, þá ertu femínisti. Kvennahreyfingin vildi með þessu afneita með öllu tilraunum einstakra jafnaðarmanna til þess að fjarlægja sig femínískum aðgerðum með því að skilgreina sig sem jafnréttissinna í stað femínista. Hræðumst ekki hugtökin, föðmum þau og gerum merkingu þeirra skýrari. Við erum allar femínistar, því við viljum allar jafnrétti kynjanna, kynslóð fram af kynslóð.
Við hlið standsins með skilaboðunum mátti einnig finna bókamerki sem kvennahreyfingin lét gera þar sem góðar og slæmar staðreyndir um stöðu kvenna á Íslandi voru taldar til.
Kvennahreyfingin stóð jafnframt fyrir málstofu um atvinnumál kvenna. Framsögumaður málstofunnar var Eygló Árnadóttir annar höfundur merkilegrar skýrslu sem unnin var fyrir velferðarvakt velferðarráðuneytisins: "Konur í kreppu?". Niðurstöður Eyglóar voru í stuttu máli:

  • að formlegt jafnrétti er mun sterkara en raunverulegt;
  • að atvinnuleysi kvenna fer vaxandi og hefur líkindi til þess að vara lengur en atvinnuleysi karla - vegna þess að niðurskurður í kvennagreinum hjá ríkinu kemur seinna fram en hrun karllægu greinanna árið 2008.
  • að launamunur kynjanna hefur minnkað í kreppunni - fyrst og fremst vegna þess að ofurlaun karla hafa lækkað, og
  • að verulega skortir á kyngreiningu gagna hjá opinberum stofnunum, þrátt fyrir skýr lagaákvæði um vinnslu og birtingu slíkra upplýsinga.

Kvennahreyfingin heitir því að grípa boltann, að grípa skilaboðin sem Eygló færði okkur og leggja sitt af mörkum til þess að þrýsta á breytingar á öllum ofangreindum þáttum. Ég mun á næsta fundi stjórnar kvennahreyfingarinnar jafnframt leggja til að haldnir verði fleiri fundir með höfundum skýrslunnar, Eygló Árnadóttur og Evu Bjarnadóttur þar sem einstakir þættir hennar verði teknir til frekari umræðu. Skýrslan á sannarlega erindi við okkur allar.
Þangað til getið þið nálgast hana á vef velferðarráðuneytisins: http://www.velferdarraduneyti.is/rit-og-skyrslur-vel/nr/32718

Skilaboð Wilkinson
Það verður ekki hjá því komist að minnast á frábæran fyrirlestur Richards Wilkinson sem brýndi fyrir okkur með margþættum tölulegum staðreyndum hvers vegna við erum jafnaðarmenn: Jöfnuður er betri fyrir alla, hvar sem við erum í þjóðfélagsstiganum. Jafnari þjóðfélög dafna betur.
Ég hvet ykkur eindregið til þess að kynna ykkur fyrirlesturinn, horfa á framsögu Wilkinson sem finna má á landsfundarvef Samfylkingarinnar, landsfundur.is og hlusta á viðtal við hann í Silfri Egils, þarna eru á ferðinni skilaboð sem eiga erindi við okkur allar.

Ályktanir flokksins
Margar ályktanir flokksins sem samþykktar voru á landsfundinum tæptu með einhverjum hætti á jafnrétti kynjanna. Í stjórnmálaályktun landsfundarins var minnt á að baráttan fyrir kvenfrelsi og gegn hvers kyns mismunun væri ekki eingöngu réttlætismál heldur skili það einnig aukinni fjölbreytni sem stuðlar að betri nýtingu á mannauði og hugviti samfélagsins. Í aðgerðaráætlun í málefnum ungs fólks var minnt á ólík áhrif barneigna á stöðu kynjanna á atvinnumarkaði og mikilvægi fæðingarorlofsins í þeim efnum. Þar var jafnframt lagt til að fæðingarorlof yrði lengt í 12 mánuði og að hámarksgreiðslur úr sjóðnum endurspegli meðallaun í landinu. Í ályktun um velferð og jöfnuð var einnig tekin upp sú stefna að fæðingarorlof eigi að vera eitt ár og draga eigi skerðingar undanfarinna ára til baka. Í ályktun um efnahagslega sókn var því heitið að kynjuð fjárlagagerð verði þróuð áfram, og svo mætti áfram telja.

Lagabreytingar
Á landsfundinum voru gerðar nokkrar lagabreytingar sem hafa bein áhrif á starfsemi kvennahreyfingar Samfylkingarinnar. Þar ber fyrst að nefna að í fyrsta sinn er kvennahreyfingin tilgreind í lögum flokksins. Með nýjum kafla er fjallað um landshreyfingar og þar sérstaklega tilgreint að kvennahreyfing Samfylkingarinnar teljist til landshreyfinga flokksins. Formenn landshreyfinga eiga einnig með nýjum lögum seturétt á fundum framkvæmdastjórnar og flokksstjórnar með málfrelsi og tillögurétti. Er það klárlega til bóta og eykur til muna möguleika kvennahreyfingarinnar til þess að hafa áhrif á forystu flokksins.
Eins má nefna að gerð var breyting á upphafsákvæði laganna þar sem öll upptalning um inntak jafnaðarstefnunnar var tekin út, þar á meðal hugtakið kvenfrelsi. Leiðir það til þess að enn mikilvægara verður fyrir kvennahreyfinguna að halda flokknum við efnið í skilgreiningu jafnaðarstefnunnar svo öllum sé það ljóst að kvenfrelsi verður aldrei fellt út úr jafnaðarstefnunni, þó það hafi fallið úr 1. gr. laga Samfylkingarinnar.

Kosningar í embætti
Að lokum er ekki úr vegi að rifja upp sterka stöðu kvenna við kosningu í embætti innan flokksins.

  • Jóhanna Sigurðardóttir fékk endurnýjað umboð sem formaður
  • Helena Karlsdóttir var endurkjörin ritari
  • Margrét S. Björnsdóttir fékk endurnýjað umboð til formennsku í framkvæmdastjórn,
  • Fjórar konur hlutu beina kosningu í framkvæmdastjórn og þurfti því ein að víkja vegna reglna flokksins um kynjahlutföll.
    Margrét K. Sverrisdóttir hlaut flest atkvæði frambjóðenda í framkvæmdastjórn og Guðrún Jóna Jónsdóttir formaður ungra jafnaðarmanna ásamt Kristínu Sævarsdóttur fylgdu fast á eftir. Hrafnhildur Ragnarsdóttir varaformaður kvennahreyfingar Samfylkingarinnar þurfti að víkja fyrir Valdimar Guðmannssyni og á því sæti í varastjórn.

Þegar þetta er skrifað hafa niðurstöður kosningar í verkalýðsráð ekki verið gerðar opinberar og endurtaka þarf kosningu í flokksstjórn.

Ég vil að lokum þakka ykkur öllum sem lögðuð með einum eða öðrum hætti ykkar lóð á vogarskálarnar til þess að gera góðan landsfund enn betri; starfsmenn fundarins, fulltrúar í málefnanefndum, þátttakendur í málstofum og framsögumenn eða tillöguflytjendur, út um allt voru öflugar og kraftmiklar konur að störfum með það að markmiði að gera Samfylkinguna að betra stjórnmálaafli - fyrir okkur öll.

með baráttukveðju,
Elfur Logadóttir, formaður kvennahreyfingar Samfylkingarinnar

(bréf þetta sem stílað er á félaga í kvennahreyfingu Samfylkingarinnar er skrifað á kvennafrídaginn 24. október 2011. Skrifstofa flokksins, sem sér um útsendingu slíkra bréfa er lokuð þann dag og mun bréfið því berast í tölvupósti til allra félaga kvennahreyfingarinnar þann 25. október 2011.)