You are here

Framboðsræða 18. janúar 2010

Fundarstjóri, ágætu félagar.

Í vor eru 20 ár frá því bæjarstjórn félagshyggju var skipt út í Kópavogi og í staðinn kosin bæjarstjórn fámennisvalds og fyrirgreiðslustjórnmála með tilheyrandi spillingu. Fyrir 20 árum var ég menntaskólamær á 19. aldursári með hugsjónir og full eldmóðs til framkvæmda. Í samvinnu við bekkjarbróður minn gaf ég út Blað ungra Kópavogsbúa. Tilgangur okkar var að afhjúpa tvískinnung efsta manns á lista Sjálfstæðisflokksins, manns sem virtist einskis svífast og segja það sem hann taldi söluvænlegast hverju sinni, sannleikur eða fyrri orð skiptu þá litlu máli. Sjálfstæðisflokkurinn vann þessar kosningar og bekkjarbróðir minn, gegn framsóknarmaður, varð formaður íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs. Lærdómur minn af þessu pólitíska brölti í menntaskóla var tvíþættur: Í fyrsta lagi er lygilega ósvífinn og forhertur málflutningur hylltur af kjósendum sjálfstæðisflokksins; og í öðru lagi, Framsóknarflokkurinn leggst til vinstri í kosningabaráttu en starfar til hægri eftir kosningar.

Nú stend ég hér 20 árum síðar og horfi yfir sviðið, yfir þróun Kópavogs þennan tíma undir harðstjórn frjálshyggjunnar. Það er mikið af nýjum götum og það er mikið af nýjum húsum – fjöldi nýrra íbúa. Þeir eru vafalaust ánægðir sem setja þau gildi ofar öllu. Við erum stórt bæjarfélag – en erum við heilbrigt bæjarfélag? Hver er árangurinn, áhrifin á mannlífið og möguleika þess? Hvaða byrðar þurfa komandi kynslóðir að glíma við – fjárhagslega og ímyndarlega. Það hefur vissulega verið framkvæmt – en á kostnað hvers? Íbúafjöldinn hefur tvöfaldast og ný hverfi hafa sprottið upp – en á kostnað hvers?

Kópavogur skuldar 38 milljarða króna samkvæmt endurskoðaðri áætlun fyrir árið 2009, þar af eru lífeyrisskuldbindingar 4 milljarðar. Greiða þurfti 2,5 milljarða í vaxtagjöld umfram vaxtatekjur á árinu 2009. Það jafngildir samanlögðum rekstrarkostnaði allrar félagsþjónustu Kópavogs og allra framlaga til æskulýðs- og íþróttamála á árinu 2009. Heildarskuldirnar eru 211% af heildartekjum ársins 2009. 296% af skatttekjum. 1,3 milljónir á hvern íbúa í Kópavogi. Það er sambærileg fjárhæð á hvern íbúa og ástarbréf Seðlabankans skilja eftir sig. Og svo guma Sjálfstæðismenn af getu sinni, og halda því fram að vinstri menn skorti burði til fjármálastjórnar, að þess vegna kjósi fólk Sjálfstæðisflokkinn, og þeir hafa komist upp með það.

Þetta minnir mig á ævintýrið um Rauðhettu. Úlfur frjálshyggjunnar hefur í 20 ár unnið með lævísu ívafi, og sett á sig félagshyggjunátthúfu framsóknar þegar við á, en hann er smám saman að fyllast af steinum. Sem betur fer þekkjum við hvernig ævintýrið endar.

Góðir félagar, ég heiti Elfur Logadóttir. Ég er 38 ára einstæð móðir. Ég er ein fjögurra barna hjónanna Loga Kristjánssonar og Ólafar Þorvaldsdóttur. Ég hef búið í Kópavogi síðastliðin 25 ár. Ég er lögfræðingur og viðskiptafræðingur, sérmenntuð í upplýsingatæknirétti. Ég er lögfræðingur Auðkennis og talsmaður félagsins við innleiðingu rafrænna skilríkja til almennings á Íslandi. Ég sinni einnig rekstrarmálum fyrirtækisins, fjárhagsáætlanagerð og vöruþróun.
Ég hef í gegnum tíðina meðal annars starfað við lögfræðileg málefni, fjármálastjórn, verkefnastjórn og hugbúnaðargerð, og meðal annars unnið hjá Breiðabliki, Íbúðalánasjóði, skattrannsóknarstjóra ríkisins og HN markaðssamskiptum. Ég hef auk þess verið stundakennari og gestafyrirlesari í grunn- og meistaranámi lagadeildar Háskólans í Reykjavík.

Ég er varaformaður stjórnar kvennahreyfingar Samfylkingarinnar og varaformaður stjórnar kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í suðvesturkjördæmi. Í aðdraganda alþingiskosninga síðastliðið vor tók ég þátt í vinnu við stefnu flokksins um efnahagslega endurreisn. Augljós tengsl eru á milli stefnumótandi ákvarðana ríkisstjórnarinnar um efnahagslega endurreisn og þess félagslega stuðningsnets sem felst í nærþjónustu sveitarfélaga. Ég legg því áherslu á að ávallt verði hugað að áhrifum ákvarðana á heimilin og fjölskyldurnar við áætlanagerð í bæjarstjórn Kópavogs. Í því sambandi þarf sérstaklega að standa vörð um félagslega virkni, ungra jafnt sem aldinna, og skipa félagasamtök, m.a. á sviði íþrótta, tómstunda og menningar, þar lykilhlutverk.

Gerum fólkið að forgangsatriði – ekki fasteignirnar.

Ég hef ávallt lagt áherslu á gagnsæ, málefnaleg og heiðarleg vinnubrögð og ég tel að opnir stjórnarhættir og öflugt samstarf við bæjarbúa og aðra hagsmunaaðila sé farsælasta aðferðin við stjórnun bæjarfélags.

Góðir félagar, ég heiti Elfur Logadóttir og ég gef kost á mér í 4. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Kópavogi. Við þurfum sterka fulltrúa í bæjarstjórn Kópavogs á næsta kjörtímabili og stóran hóp bakvarða til stuðnings. Ég býð fram krafta mína í komandi forvali til þess að endurvekja félagslegar áherslur í Kópavogi á grunni velferðar, nálægðar og sáttar við umhverfið.